Kerfisþróun
Útgáfa 2010.2 - Leiðbeiningar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Hafið samband við skrifstofu Kerfisþróunar til að fá eintak af útgáfu 2010.2

ATH:
Eftir uppfærslu þarf að setja inn handvirkt VSK breytingar.
Leiðbeiningar um breytingar á VSK eru að finna á þjónustuvef okkar.


Launakerfi:

Skattbreytingar

Eftir að búið er að setja nýtt launakerfi inn þarf að fara inn í það og þar í Stýriupplýsingar. Í flipanum Skattar og önnur hlutföll þarf að setja inn viðmiðunarupplýsingar fyrir hin nýju skattþrep.
Í Hátekjuskattur 1 % er sett 2,90 og í Viðmiðun hátekjuskatts 1 er sett 200.000,-.
Í Hátekjuskattur 2 % er sett 8,90 og í Viðmiðun hátekjuskatts 2 er sett 650.000,-.
Staðgreiðsluprósentan er 37,22 og persónuafsláttur 44.205,-.
Því næst þarf að fara í hvern launþega fyrir sig og þar í flipann Laun og greiðslur og setja þar viðeigandi gildi í reitina Laun frá öðrum og Laun maka. Ef launþegi er með yfir 650.000 í laun á að skrá 650.000 í reitinn Laun maka því leiðrétting vegna samsköttunar hjóna verður gerð við endurreikning álagningar.

Sjálfgefinn launaseðill birtir ekki tekjuskattsprósentur við skattalínuna en hægt er að velja nýja útgáfu af launaseðli sem birtir stighækkandi prósentur eftir því sem við á fyrir hvern launþega. Til að virkja hann þarf að fara í Stýriupplýsingar og þar í flipann Annað og velja Launaseðill m/ skattprósentum í gluggann Tegund launaseðils.

Til athugunar vegna virðisaukaskýrslu fyrir tímabil á árinu 2009.

Vegna breytinga á virðisauka þarf að hafa í huga að þegar búið er að breyta vsk í 25,5 þá notar Stólpi nýju prósentuna til að finna “Reiknaðan virðisauka” þótt verið sé að prenta virðisaukaskýrslu fyrir tímabil á 2009. Það þarf ekki að óttast að færslur sem voru færðar 2009 með 24,5 vsk hafi breyst heldur er eingöngu um útreikning í skýrslunni að ræða.

Til að fá rétta vsk skýrslu má velja eftirfarandi leiðir:
  1. Taka tölur sem eru undir “Færður virðisauki” og handfæra inn á skýrsluna.
  2. Breyta vsk prósentu í “Uppsetning virðisauka” meðan verið er að prenta skýrsluna. Það þarf að passa að ekki séu gerðir reikningar eða færðar dagbókarfærslur á meðan þetta er gert.
  3. Sækja nýja útgáfu af Stolpi.zip.

Tvísmellið á Stolpi.zip og dragið Stolpi.mdb út á Skjaborðið. Færið skrána yfir í Stólpa forrita möppuna (Vanalega C:\Stowin) og yfirskrifið það sem er til fyrir.
 
Opnunartími um Jólin 2011 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Jol2011

Það verður lokað hjá okkur á Þorláksmessu 23. Desember. Ef erindið þolir ekki bið er bent á neyðarsímann 773-4300.
Aðra virka daga er opið eins og venjulega frá kl. 9-17.
 
Stólpi 2012.1 komin út! Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Stólpi 2012 er kominn út.

 

Ný útgáfa af Stólpa hefur nú verið send til viðskiptavina. 

Að venju hafa notendur Stólpa lagt okkur til mikið af góðum hugmyndum og segja má að það sem helst einkennir þessa útgáfu eru nýjungar sem stytta leiðir og auðvelda vinnuna. Sem dæmi má nú skoða hreyfingar, samninga, tilboð, verk oþh beint frá skuldunaut, hægt að setja viðhengi á hann t.d. Excelskjöl eða myndir, senda póst með einum músarsmelli ofl. Margir fagna sjálfsagt sjálfvirku uppgjöri virðisauka og að geta sent launaseðla í heimabanka í gegnum hvaða banka sem er. Þá hafa verið gerðar breytingar sem snúa að öryggi gagna, hægt að loka fyrir bókanir á ákv mánuði og eldri ár, einnig að hægt sé að bóka beint á söfnunarlykla ofl.

 

 

Fjölmargt annað skemmtilegt er að finna í öllum einingum í nýjum Stólpa. Nánari upplýsingar um nýungarnar má finna á þjónustuvef Stólpa http://thjonusta.stolpi.is  en einnig hvetjum við ykkur til að hafa samband við okkur í s.512-4400 ef þið óskið frekari upplýsinga.

 

Þeir sem láta hýsa Stólpa hjá Kerfisþróun fá uppfærslu á næstu dögum. Að venju er sú vinna ekki skuldfærð sérstaklega. 

 

Nánar...
 
Mismunur á virðisaukaskattskýrslu Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Mismunur á virðisaukaskattskýrslu
Ef að útskatturinn kemur tvöfaldur á skýrslunni þarf að gera eftirfarnadi: 

Fara í Uppsetning/Uppsetning virðisauka
Í línu nr.9 Tekjur undanþ.vsk  breyta reiknislykil úr 9800 í td.9880
Eftir það ætti skýrslan að koma rétt út.


Launabreytingar 2012
Nánari upplýsingar inni á þjónustuvefnum okkar.

  • Skatthlutfall í staðgreiðslu
  • Persónuafsláttur
  • Breytt lög um séreignarsparnað
  • Tryggingargjald lækkar


XML Launaseðlar

Útlits villa var í birtingu XML launaseðla í vissum heimabönkum þar sem ein lína birti ekki íslenska stafi. Þessi villa hefur verið löguð hjá Birtingi, en ef þitt fyrirtæki tekur enn eftir þessari villu, endilega láttu okkur vita og við skulum sjá til þess að það verði lagað.


Röðunargalli í Access 2010
Komið hefur í ljós galli í Access 2010 hjá Microsoft sem lýsir sér þannig að þegar skýrslur eru opnaðar sem nota síur, þá helst ekki rétt röðun og því líta skýrslurnar ekki rétt út. Þetta er kannski allra verst hjá þeim sem eru að gera vörutalningar um þessar mundir og viljum við því láta vita að við höfum lausn við þessu. Ef þú ert að nota Access 2010 og ert að lenda í vandræðum með akkúrat þetta, hafðu þá samband við okkur í síma 512 4400.

 
Námskeið Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

 

 

Námskeið í Mars!

 

 

 

 

Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 4