Niðurtalning í Ubuntu 9.10 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst


Nú er á leiðinni útgáfa 9.10 af Ubuntu og er þess beðið með mikilli eftirvæntingu um allan heim. Ubuntu hefur unnið mikið á í stríðinu um stýrikerfin og þykir í dag eitt alþægilegasta stýrikerfi sem fæst á útstöðvar. Sífellt er unnið að því að kerfið styðji betur vélbúnað og hafa bæði Dell og IBM farið þá leið að bjóða Ubuntu sem valkost á sínar vinnustöðvar.