Nýtt fyrir Stólpa Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Nýtt áætlanakerfi fyrir Stólpa

Kerfisþróun hefur í samstarfi við ráðgjafar- og hugbúnaðarfyrirtækið Sjónarrönd aðlagað áætlana- og greiningalausnina ValuePlan fyrir Stólpa. Hér er um þrautreynda lausn að ræða sem hefur verið í notkun í mörg ár hjá ýmsum af stærri fyrirtækjum landsins. Meðal notenda má nefna Ölgerðina, Íslensk Ameríska, Skeljung og Björgun.

Með ValuePlan lausninni má halda utan um alla áætlanagerð á þægilegan hátt og fylgjast með rekstrartölum og bera saman við áætlanir hvenær sem er.

Innleiðingarkostnaður er í lágmarki því ekki þarf að tengja bókhaldslykla og vöruflokka við ákveðnar lykilstærðir í greiningartólinu heldur vinnur það beint ofaní gagnagrunn Stólpa og því þarf ekki neinar séraðlaganir hjá hverjum og einum.

Með stöðlun ValuePlan kerfisins fyrir Stólpa býðst smærri fyrirtækjum einstakt tækifæri til að njóta kosta öflugrar lausnar til greiningar og áætlanagerðar fyrir brot af þeim kostnaði sem yfirleitt fylgir innleiðingu slíkra lausna.

Kynning verður haldin á þessari spennandi lausn miðvikudaginn 6. janúar kl.10 að Skúlagötu 19 en þar eru bæði fyrirtækin til húsa. Vinsamlegast tilkynnið þáttöku og fjölda á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.