| Stólpi 2012.1 komin út! |
|
|
|
|
Stólpi 2012 er kominn út.
Ný útgáfa af Stólpa hefur nú verið send til viðskiptavina. Að venju hafa notendur Stólpa lagt okkur til mikið af góðum hugmyndum og segja má að það sem helst einkennir þessa útgáfu eru nýjungar sem stytta leiðir og auðvelda vinnuna. Sem dæmi má nú skoða hreyfingar, samninga, tilboð, verk oþh beint frá skuldunaut, hægt að setja viðhengi á hann t.d. Excelskjöl eða myndir, senda póst með einum músarsmelli ofl. Margir fagna sjálfsagt sjálfvirku uppgjöri virðisauka og að geta sent launaseðla í heimabanka í gegnum hvaða banka sem er. Þá hafa verið gerðar breytingar sem snúa að öryggi gagna, hægt að loka fyrir bókanir á ákv mánuði og eldri ár, einnig að hægt sé að bóka beint á söfnunarlykla ofl.
Fjölmargt annað skemmtilegt er að finna í öllum einingum í nýjum Stólpa. Nánari upplýsingar um nýungarnar má finna á þjónustuvef Stólpa http://thjonusta.stolpi.is en einnig hvetjum við ykkur til að hafa samband við okkur í s.512-4400 ef þið óskið frekari upplýsinga.
Þeir sem láta hýsa Stólpa hjá Kerfisþróun fá uppfærslu á næstu dögum. Að venju er sú vinna ekki skuldfærð sérstaklega.
|