Innleiðing Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Boðin er lausn í 10 liðum sem aðlaga má ólíkum óskum viðskiptavina okkar. Tilgangurinn er að tryggja sameiginlegan skilning, einfalda verkið, stytta innleiðingartíma, draga úr kostnaði og tryggja árangur. 

Kynning og greining: Fyrsta skrefið er kynning á hugbúnaðar- og vélbúnaðarlausnum, annað hvort hjá söluaðila eða á vinnustað viðskiptavinar.  Samhliða er gerð greining á þörfum og óskum viðskiptavinar. Gera þarf yfirlit yfir helstu vinnuferla og meta umfang kerfisins til að skapa grundvöll fyrir tilboðsgerð. Hver eru vandamálin og hverju vill viðskiptavinurinn ná fram? 

Vélbúnaður: Vélbúnaður þarf að uppfylla lágmarksskilyrði til að tryggja hraða og öryggi. Við leggjum áherslu á rekstraröryggi, rétta afritunartöku og þjófavörn. Meta þarf mismunandi kosti ef setja á kerfið upp fyrir margar tölvur og fjarvinnslu.

Fjármögnun: Við bjóðum staðgreiðsluverð, kaupleigu til þriggja ára á léttum mánaðarlegum greiðslum eða leigu. Fjármögnun á tölvum og öðrum búnaði er einnig í boði.

Ráðgjöf: Starfsfólk Kerfisþróunar hefur áralanga reynslu og þekkir af eigin raun lausnir á mörgum af þeim vandamálum sem fylgja atvinnurekstri. Viðskiptavinum stendur til boða alhliða ráðgjöf.

Tilboð: Á grundvelli greiningar er gert verðtilboð í heildarlausn ásamt þjónustu- og viðhaldssamningi. Innifalið í tilboði er vinna við ráðgjöf, þarfagreiningu, uppsetningu kerfis, kennslu og eftirfylgni, allt eftir óskum viðskiptavinarins. Nauðsynlegt er að skapa sameiginlegan skilning á því hvað eigi að gera, hver eigi að gera hvað, kostnað og hvenær verkinu verður lokið. 

Samningur: Gerður er skriflegur kaupsamningur þar sem fram koma upplýsingar um hugbúnaðarleyfi og fjölda notenda. Sérstaklega er gerð grein fyrir ef um sérsmíði er að ræða og sundurliðað hvað er innifalið í samningnum. 

Prufuuppsetning: Næsta skref er að flytja grunngögn yfir í Stólpa fyrir Windows. Helstu stofnskrár, s.s. birgða- og viðskiptamannaskrár eru lesnar yfir samkvæmt samkomulagi. Markmiðið er að væntanlegir notendur geti kynnst eiginleikum kerfisins með gögnum sem þeir þekkja. Einnig er farið yfir alla verkferla með viðskiptavininum. Á þessu stig er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir hvað þarf að undirbúa áður en uppsetning getur hafist. Oft er þessu stigi sleppt.

Kennsla: Frábærir eiginleikar Stólpa skipta litlu ef starfsmenn kunna ekki að nýta sér þá eða nota á rangan hátt. Færni starfsmanna er undirstaða góðs árangurs í starfi. Boðin er margþætt kennsla, allt eftir óskum hvers og eins.

Uppsetning: Næsta skref er að setja upp raunkerfið og einnig eru stofnskrár fluttar yfir á ný ef nauðsyn krefur. Að þessu loknu fara fram viðtökupróf ef um sérsmíði er að ræða.. Tilgangur viðtökuprófsins er að ganga úr skugga um að kerfið fullnægi skilyrðum og væntingum viðskiptavinar og sé eins og um var samið. Hin eiginleg vinnsla getur hafist.

Eftirfylgni eftir hálft ár: Til að tryggja farsæla framkvæmd er haldinn a.m.k. einn fundur með viðskiptavini þar sem farið er yfir framvindu verkefnisins og skráð öll ólokin mál, ef einhver eru, ásamt áætlun um úrlausn þeirra. Ávallt er skipaður tengill sem samræmir samskipti við starfsmenn Kerfisþróunar og kennir öðrum starfsmönnum.