Námskeið Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Auk námskeiða bjóðum við upp á sérkennslu hvenær sem er og hvar sem er, hvort heldur er í gegnum síma, á vinnustað eða í Kerfisþróun. Kennslan felst fyrst og fremst í því að aðstoða viðskiptavini við að vinna sína vinnu á sem skilvirkastan hátt í Stólpa og nýta alla þá kosti sem hann hefur upp á að bjóða.

Það er auðvelt að læra á Stólpa og til stuðnings er símaaðstoð, handbók og frábærar leiðbeiningar á þjónustuvef. Og ef þess er óskað geta starfsmenn Kerfisþróunar tengst tölvum viðskiptavina um fjartengingu en viðskiptavinurinn stýrir aðgenginu hverju sinni.

 

Námskeið

Kennt er í kennslustofu Kerfisþróunar, Skúlagötu 19 en einnig eru haldin námskeið hvar sem er á landinu samkvæmt óskum. Athugið að félagar í stéttarfélagi eiga flestir rétt á styrk úr endurmenntunarsjóði síns félags.

 

Byrjunarnámskeið er innifalið

Allir viðskiptavinir eiga rétt á einu byrjunarnámskeiði en næsta námskeið er ávallt auglýst hér á vefnum undir "Framundan". Vinsamlegast bókið tíma. Byrjunarnámskeið gildir fyrir einn þátttakanda í eitt skipti.