| Símakennsla |
|
|
|
|
Í samvinnu við viðskiptavininn er gerð áætlun um nauðsynlega kennslu og honum leiðbeint símleiðis við ákveðna kennsluáætlun. Starfsmenn Kerfisþróunar geta tengst tölvu nemandans hvenær sem er ef þörf krefur. Á þennan hátt er viðskiptavinum leiðbeint, kennt og hjálpað til að verða sjálfbjarga.
Innifalið í símakennslu er: Skipulögð aðstoð og kennsla á umsamin bókhaldskerfi og ákveðinn fjöldi símtala. Símakennsla innifelur ekki byrjendakennslu í bókhaldi, uppsetningu og breytingu á bókhaldslykli, framtalsaðstoð, ráðgjöf varðandi tækjaval og netuppsetningar. Í fyrstu tveimur símtölunum er viðskiptavini kennd undirstöðuatriðin við að bjarga sér sjálfur auk þess sem honum er sett fyrir ákveðið verkefni fyrir næsta skref. Í þriðja símtali er yfirfarið hvað gert hefur verið og nemanda sett fyrir ný verkefni. Við höfum náð einstæðum árangri með þessari kennsluaðferð. Mælt er með því að nýir notendur séu búnir að vinna um tíma við Stólpa áður en þeir panta sérnámskeið því þannig nýtist það best. Forsenda símakennslu er samningur um fjarþjónustu. Gerð er áætlun um kennsluþörf því hún er mjög einstaklingsbundin. Verð er miðað við fjölda kerfa og símtala. |