| Sala |
|
|
|
|
Fastar pantanir og samningar Fjölþættir möguleikar á að geyma s.s. þjónustusamninga, húsaleigusamninga og fastar pantanir sem á að afgreiða á vissum dögum. Visa/Euro raðgreiðslur Hægt er að senda greiðsluskrá úr Stólpa til Visa og Euro. Póstkröfur og tenging við Pósstoð Hægt að prenta póstkröfur í Innheimtukerfi og er kerfið beintengt Póststoð Íslandspósts. Gírókerfi, A og B gíró Sérhönnuð viðbót við sölukerfið fyrir A og B gíróseðlaútskrift. Verkbókhald með sölukerfinu Kerfið hentar mjög vel fyrir verkstæði og aðra þá sem þurfa að einfalda og flýta fyrir skráningu og reikningsútskrift. Samningsgreiðslur Gagnlegt t.d. fyrir bókun á föstum samningum sem tekjufæra þarf jafnt yfir árið. Kassakerfi, tenging. Samskiptahluti sem gerir möguleg samskipti við einn eða fleiri verslunarkassa. Bifreiðakerfi Kerfið er sérhannað fyrir réttingaverkstæði, bílamálun, almenn bifreiðaverkstæði, véla- og búvélaverkstæði. Póstverslun Sérstök viðbót fyrir pantanamóttöku, til að senda út tilkynningarbréf til þeirra sem bíða eftir sendingum. Tenging við farsölukerfi Gefur kost á samskiptum við sérhannaðar sölumanna- og afgreiðslutölvur sem sölumenn fara með í verslanir til að selja eða taka niður pantanir. Dýralæknakerfi Sérhannað kerfi fyrir dýralækna með möguleika á að skrá reikninga, sjúkdómsgreiningar og lyfjanotkun. Sölukerfi Rafrænir reikningar í einriti. Í kerfinu er tilboðsgerð, tilboði má breyta í pöntun eða frátekið og síðan í reikning. Verðskrá Eykur öryggið og flýtir fyrir reikningsútskrift. Sölugreining Upplýsingar búnar til úr reikningum. Hægt að greina sölu á hvern þann hátt sem óskað er. Afsláttarkerfi Afslátt má skilgreina sem afsláttarflokk og aðlaga að einstaka viðskiptamönnum. Fylgibréf Hægt að prenta fylgibréf í A4 stærð í eins mörgum eintökum og óskað er. XML-Rafrænir reikningar Hér gefst kostur á að senda reikninga rafrænt. Hafðu samband við sölumann |