Netkerfi Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Boðin er sérfræðiþjónusta af hæsta gæðaflokki við uppsetningu, rekstur og eftirlit tölvukerfa.  ,,Allt á einum stað" þjónusta getur verið mjög hagkvæm fyrir alla aðila.

Forsenda þess að starfsmenn Kerfisþróunar annist uppsetningu, rekstur og viðhald tölvubúnaðar og netkerfa er að í gildi sé viðhalds- og þjónustusamningur og samningur um fjarþjónustu. Einnig er það skilyrði af hendi Kerfisþróunar að aðrir þjónustuaðilar eigi ekki við netuppsetningu nema að höfðu samráði.

Gjald fyrir þjónustu þessa er tímagjald auk ferðakostnaðar og er t.d. samið um lágmark tvær heimsóknir á ári. Auk þess öðlast viðskiptavinurinn rétt á forgangsþjónustu og árgjald fyrir ráðgjöf og sérfræðiþjónustu er innifalið.