Þjónusta Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Viðskiptavinir Kerfisþróunar og notendur Stólpa eiga rétt á þeirri aðstoð og þjónustu sem þeir hafa þörf fyrir hverju sinni. Allir eiga rétt á góðum leiðbeiningum áður en kaup eru ákveðin. Starfsfólk Kerfisþróunar lítur á það sem skyldu sína að aðstoða við val á bestu og hagkvæmustu heildarlausnum, innleiðingu og rekstri fyrir viðskiptavini því til lengri tíma litið fara hagsmunir saman. Þar sem þjónustan er miðuð við óskir hvers og eins þarf reglulega að yfirfara hvers óskað er og semja um þjónustustig.

Þjónustuvefur

Starfsfólk okkar leggur sig fram um að veita úrvalsþjónustu en þeir viðskiptavinir sem þess kjósa geta bjargað sér sjálfir með einstaklega góðum leiðbeiningum á þjónustuvef Kerfisþróunar. Markmið okkar er að aðstoða viðskiptavini svo þeir verði sjálfbjarga.