Innheimta Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Er innheimtan í lagi ?

Margir endurskoða reglulega innheimtuferla sína með það að markmiði að bæta greiðslustöðuna og koma í veg fyrir útlánatap. Best gefst að skilgreina vel hvert stig innheimtu, þ.e. hvað ber að skoða áður en nýjum viðskiptavini er lánað, hvernig er staðið að innheimtu og síðan hvernig er tekið á vanskilum.

Innheimtulistar

Einfaldur skuldalisti fæst í Skýrslum í Skuldunautakerfinu. Hægt er að velja dagsetningar að vild og kemur staðan miðað við valda dagsetningu. ,,Gjaldfallið og ógreitt" er mjög góður listi sem sýnir heildarstöðu og stöðu ógreiddra reikninga miðað við valda dagsetningu. Við endurskoðun bókhalds má sjá t.d. ársgamlar skuldir og eldri.

Fyrirspurn skuldunauta

Best er að fara í Skuldunauta og Fyrirspurnir. Hér sést staða hvers og eins og síðasta innborgunardagsetning. Í tækjaslá er hægt að kalla fram spjald viðkomandi til að breyta og skrifa athugasemdir. Ef tvísmellt er í fyrirspurnarlínu sjást hreyfingar og ef tvísmellt er á reikning þá sést hann allur. Reikninginn má prenta eða senda í tölvupósti. Lengst til vinstri sjést hvort áminning eða athugasemd sé skrá eða hvort búið sé að loka reikningi.

Innheimtukerfi

Sérstakt kerfi er til að prenta greiðsluseðla, senda upplýsingar í banka og sækja til baka upplýsingar um innborganir. Greiðsluseðlar eru ýmist prentaðir sérstaklega eða þeir hafðir áfastir við reikning. Gefa má stiglækkandi greiðsluafslátt ef greitt er fyrir umsaminn tíma og kerfið útbýr kreditnótur á sjálfvirkan hátt. Einnig má leggja á stighækkandi vanskilakostnað. Innheimtukerfinu fylgir möguleiki á að prenta ítrekunarbréf og er því auðvelt að ákveða einfalda reglu fyrir innheimtuferilinn, þ.e. hvenær á að senda ítrekun. Kerfinu fylgir tenging við Pósstoð Íslandspóst og forrit til að reikna og prenta Visa/Euro raðgreiðslusamninga.

Tenging við innheimtufyrirtæki

Fjölmörg innheimtufyrirtæki bjóða þjónustu sína og nokkur þeirra bjóða þjónustu sem líkja má við innheimtuþjónustu bankanna sem margir viðskiptavina okkar nýta sér. Við getum boðið vélræna tengingu við slík kerfi.

Lánstraust hf.

Með áskrift er hægt að fá beinan aðgang að þjóðskrá og fyrirtækjaskrá. Fyrirtækið býður m.a. vanskilavakt sem er mjög virkt tæki til að fylgjast með vanskilum viðskiptavina.