Verslun Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Sölukerfið í Stólpa er kjörið fyrir reikningsgerð, víða henta verslunarkassar og er þá Stólpi notaður fyrir ,,bakvinnslu". Stundum er gamla góða sjóðvélin hentug.

Verslunarkassar

Við bjóðum tengingu við flestar gerðir verslunarkassa með snertiskjám og öllum aukabúnaði eftir óskum. Kerfin henta víða m.a. í verslunum, veitingahúsum, hótelum og þjónustufyrirtækjum. Sérlausnir fást fyrir s.s. bakara, hársnyrtistofur, gullsmiði, sjoppur, húsgagnaverslanir, kaffihús, mötuneyti, pizzastaði, líkamsrækt og tískuverslanir. Strikamerki, gjafakort, lánsviðskipti, greiðslukortasamningar, tenging við kortafyrirtæki og fleiri þættir eru leystir á þægilegan og hagkvæman hátt.

Reikningsgerð í Stólpa

Í vaxandi mæli er Stólpi notaður til tekjuskráningar og uppgjörs. Hægt er að stofna greiðsluskilmála á þann hátt að, s.s. staðgreiðsla og Visa mótbókist strax inn á viðkomandi lykla. Í söluuppgjöri dagsins kemur neðst sundurliðun eftir greiðsluskilmálum sem einungis þarf að stemma við kassauppgjörið. Hægt er að margskipta reikningum eftir greiðsluskilmálum, t.d. að hluta til staðgreitt og að hluta til með korti. Öflug meðhöndlun á gjafakortum og innleggsnótum.

Sjóðvél

Daglega þarf að skrá niðurstöðutölur í fjárhagsbókhaldið. Til að auðvelda þá vinnu er hægt að fara í ,,Sjálfvirkar dagbókarfærslur" og útbúa færsluskjal sem síðan er uppfært daglega í Vinnslur og verður þá til dagbók með öllum bókhaldslyklum forskráðum. Einungis þarf að skrá upphæðir og eyða þeim línum sem ekki eiga við þann daginn, s.s. ef ekkerft hefur verið greitt með Euro. Þessi aðferð hentar t.d. við sjoppurekstur og fyrir minni þjónustuaðila. Notað er einungis fjárhagsbókhaldið og e.t.v. launakerfið.

Heildarlausn

Stólpi fyrir Windows heldur utan um bókhaldið, lánsviðskipti, innheimtu, sölusögu, birgðir, innkaupasögu, pantanatillögur, tollafgreiðslu, verðútreikning og vörumóttöku. Við bjóðum einnig launakerfi með klukkukerfi sem reiknar út vinnutímann eftir mætingareglum. Við bjóðum marga möguleika varðandi tímaskráningar, s.s. með segulkortum eða nándarlesurum.